erum flutt

30. nóvember 2006 klukkan 17:27
Erum flutt af hrauntungunni svo það er ný heimasíða.

http://www.hlynsalir.bloggar.is

sigmar magnusson

mar er í hættu að blogga

20. nóvember 2006 klukkan 14:31
eg ákvað að taka þetta burt það sem eg skrifapi þvi það var einhver asni sem let þetta inna b2.is og það voru nokkrir með athugasemdir sem eg var ekki að leytast eftir og fgyrirtækið mitt i hættu utaqf þvi svo eg blogga bara aftur þegar eg er fluttur....
sigmar magnusson

góði hirðirnn

04. nóvember 2006 klukkan 18:23
ætlaði nú aldeilis að sofa út i dag en nei heppnaðist nu ekki fyrir þessum helvitis sima eg let hann a silent og þa vibraði hann bara og siðan slökti eg á honum og þá hringdi vekjaraklukkan helvitis helviti.. ekki er nu hægt að sofa út mar.
en já hvað á eg að bulla her ...nóg er að gera i  Bílþrif en eftir oktomber mánuð var eg bara á þvi að selja þetta isss það var lélegur mánuður  en juju allir að borga visa og sona en nuna jólin að koma og þá er brjálað og mer vantar en mann i vinnu eg er ekki að meika að gera þetta einn taka um 8 bila á dag ekkert alveg að gera sig sko . nudd á föstudögum :S en ja við fengum íbuðina sem við skoðuðum nuna i okt og er hun 107 fermetrar 3 herbergja á efstu hæð  (5hæð) það fylgir henni mikið allt glænýtt t.deldhúsborð og 6 stólar sófi hillusamtaða ískápur uppþvottavel;) þurkkari :) og frystikista, bílskýli og margt fleyrra já grill hehe þetta er bara geggjað annað en þessi skitahola sem við erum i nuna :)




ja þetta verdur fint mar .

en já eg er að fara að vinna sem dyravörður i kvöld á ballinu i gardinum ásamt emma bró og jón tryggva . bara einsog þetta var á casino vantar vara rafual :)
eg og helga min fórum á fittnesmótið og það var bara gaman eg er nattulega að æfa enþá og var 102 kilo og er 97 nuna það er fint ætla að fara að byggja mig upp nuna ..;) á fitnessmotinu hitti eg himma,dóra,jón,jón f, steina og alla geggjað fint mar að hitta þá aftur ,, en eg er frainn ... eg vona að ég c ykkur öll á ballinu arios    sigmar
sigmar magnusson

helga - ekki minn dagur!

25. október 2006 klukkan 21:31
jæja..ég er komin til þess að skrifa nokkur orð.

undanfarna daga hefur mér liðið mjög vel..ég er búin að svífa um á bleiku skýi og lífið leikur við mig..

ég er búin að hugsa mikið um jólin og komin í svolítið svona jólaskap, sem er svolítið skrítið þar sem ég fer vanalega ekki í stuð fyrr en ég fæ einhvað gott að éta..ég er alveg búin að pæla út gjafirnar, bæði hvað mig langar að gefa öðrum og meira að segja líka hvað mig vantar! hahah! ég er meira að segja búuin að ákveða hvernig ég ætla að skreyta heima hjá okkur og hvernog jólatréð á að vera skreyttGlottandi

í dag er lífið hinsvegar á afturfótunum hjá mér. mér er búið að vera kalt og ég er búin að vera þreytt..einhvað andskotans exem er að éta mig upp til agna og fólkið í umferðinni hefur ekki séð mig!

ekki nóg með að það sjái mig ekki og svíni á mig heldur var bíllinn minn líka straujaður í skólanum í dag. bílstjórahliðin frá framstuðara og að afturstuðara er rispuð og í afturhurðinni er dæld og sprunga og fíflið sem gerði þetta stakk af og ég get ekkert gert nema finna þann aðila..

jæja..ætlaði bara að skirfa til að láta reiðina renna af mér..

hafiði það gott og gangi ykkur vel í því sem þið eruð að gera

kv.lélegi bloggarinn
sigmar magnusson

Fyrirsögn

17. október 2006 klukkan 14:47
isss ekkert er nú að ské her i fyrirtækinu okkar ég þakka nú bara hive fyrir að hafa komið internetinu i lag herna :D ef netið væri ekki her þá væri eg buin að fremja sjálfsmorð .. en maður verður að anda með nefinu einsog teingdó er altaf að segja ;) .... já , við erum búin að vera ikt dugleg í ræktinni eg fer eftir vinnu alla daga og 2 á dag um helgar ef eg get.. ég stefni á fittness 2007 ;) hvernig sem það á nu eftir að takast nei nei maður verður að hafa einhverja trú á sjálfum sér :) ég er líka í smá veðmáli þar sem eg sagði við harpu mákonu að ef eg myndi ekki vera komin með 6 pakk eða sléttan maga fyrir 23 des sem er afmælisdagurinn hennar þá myndi eg þurfa að lata hana hafa kassa af bjór en ef ég næ þessu á þessum tima þá lætur hún mig hafa kassa og eg má hella honum niður fyrir framan hana hahaha það verður gaman þvi hún er svo mikill svelgur að hún á eftir að grenja úr ser augun haha svo eg fór bara i nautulus og keyfti mer árskort á 25.000 kall og fór svo og keyfti mer hydroxycut og protein til að brenna en keyfti lika kreatin þar sem eg nota það til að byggja mig upp >;) eg mætti fyrsta timan fyrir 2 vikum og þetta er ekkert smá gaman ég get ekki beðið eftir þvi að fara á eftir hehe en hvad maður bætir þolið á þessu shjit eg gat kanski hlupið i sona 7 minutur fyrst en i gær var eg að brenna í 2og1/2 tima :) en ef þið sjáið mann i nautulus sem svitnar og svitnar með handklæði á hausnum allan timan þá er það eg hehe helga er sko lika að standa sig í þessu og litli hóllinn hennar að hverfa hahaha nú verð eg sleginn ;) um helgina fórum við til stykkishólmar að slappa af og var náttulega farið i ræktina ;) og sund og sona annars var bara eitt eginlega öllum timanum i heitapottinum sem hjörtur keyfti svo eg gæti komið oftar i heimsókn . er það ekki hjörtur .... eg vissi það .;) en já eg tók með mer myndavelina en gat nú ekki tekið neinar myndir nema einhverjar model myndir af reynir hehe sem er að fara að keppa i herra island og vantaði einhverjar myndir af ser hahaha ;allir að kjósa reynir þar að segja ef það verður sms kosning :) ... en já við erum enþá að skoða íbúð og jú við fundum eina i gær með öllu geggjað flott á 5 hæð lætur fylgja allt nytt isskáp og flott stort borð og hillusamtstaðar og bílageimsla 3 herbergja svo ef þið eruð ekki buin að finna jólagjöfina mina þá vantar mer einhvað i studio herbergið mitt ;) hehe en eg er buin að fá 3 bila nuna meðan eg er að skrifa þetta ;) kanski ætti eg að halda afram að skrifa svo eg fylli bara daginn ;)
sigmar magnusson

kallinn og staurfóturinn

04. október 2006 klukkan 18:19
það er nu bara kominn mánuður siðan ég skrifaði seinast og ekki nennir hun helga min þvi hehe neinei eg fekk góðan ljósmyndaprentara i gjöf og ákvað að taka allar snurur i tölvunni og laga þetta til svo þetta væri ekki sona druslulegt. en einsog þið vitið þa er eg bara ekkert rosalega þolimoður og var byrjaður að svitna ur reiði þvi eg var inni svo litlu svæði aðgera þetta að eg hjelt að eg myndi deyja en svo loks gafst eg upp og barði eitthvad i tölvuna og ætlaði svo að setja seinastu snuruna i samband en þa virkaði hun ekki svo eg ytti takkanum til að kveikja á henni lengra heldur en hann komst hehe og þar eiðilagdi eg allt draslið og let detta i við gerð og var buin að biða i 13 daga eftir aflkerfi og þa þurti nýtt skjakort en nuna fekk eg lánaða tölvu hja bt her i firðinum i staðinn fyrir smá þrifnað ;)
Bílþrif er buið að ganga svona lala eg er ekki hress með byrjunina a mánuðinum það sem bara 10 bilar er buin að koma i 3 daga en vanalega er það fullt alladaga manni bregdur dáldið en juju það koma timar einsog þessir og aðrir góðir ..
eg fékk mer netið frá hive heim um daginn og var að fila það i druslur fljotur að downlouda og er sem sagt nuna i kvöld komin með 7 þátt af prision break 2 seriu svo eg fekk mer i dag netið uti vinnu kostur lika þar sem það er fritt i heimasima :D svo eg ætti að spara eitthvad á þessu og get hlustað á utvarpið lika i þokkabót :)
eg er að fara að breyta um ibúð þar sem eg er komin með Ógeð af dessari sem við erum i <vi <að eru adeins 2 litlir gluggar og ætla eg lika að leigja mer með aukaherbergi semsagt 3 herb. þvi að eg er enþa með ljosmyndaahugan og ætla að sla upp studio inni einuherberginu og nota það sem tölvu aðstöðu og sona:)  eg er lika bara komin með ogeð af þvi að vera a jarðhæð mun ekki fara þangað aftur ...
en nuna er kominn bill svo eg kanski held afram veit ekki það fer eftir þvi kvort þið eruð dugleg ad commenta ;)
sigmar magnusson

vináttan :(

10. september 2006 klukkan 02:29
mér lángar að skrifa herna nokkur orð um vináttu.. og drykkju

fyrir um 7 árum kynntist ég þessum vinahóp sem ég er buin að gera allan angskotan með, en fyrir þá sem ekki vita þa er eg að tala um t.d palla himma jóa dóra og fleirri,
og við drukkum hverja einustu helgi þanga til að eg komst af dvi að eg væri alkaholisti og fór þá i meðferð til að laga min mál og var edru fyrst i 5 manuði en var altaf að stelast i einn og einn bjor og siðan var eg annað slægið að falla og hætta að drekka en svo kom af þvi að eg vissi hvað eg var að gera rangt það var það að fara á fundi það fékk mig til að fara aftur á fylleri svo eg hætti þvi .. eg er kominn með fyrirtæki sem heitir bílþrif og gengur rosalega vel og er buin að eiga hana i halft ár og steini er eini af vinum minum sem er buin að koma til min og kikja á þetta hjá mer og þá veltur fram spurningin voru þetta vinir minir i raun eða var þetta bara að vera með mer til að drekka ..eg átti afmæli um 4 september engin buin að hringja eða senda sms þótt að það stóð á msninu !! eg hugsa um þetta á hverjum degi og siðan þegar maður er á msn að tala við ákveðinn aðilla þá bara hæ hvad segiru "biddu aðeins " og ekkert meira eg kalla þetta nu ekki vinattu . eg veit að eg var nú ekki sá besti með vín og eg c eftir mörgu sem eg gerði en nuna er eg að reyna að laga þetta með þvi að hætta og er ekki buin að fá einn sopa i minn munn i 9 manuði eftir 4 daga og kalla eg það bara gottt ... þarf eg kanski að byrja að drekka aftur svo ég get fengið vini mina aftur það er rosalega erfitt að vera altaf einn og ef þu ert að hugsa afhverju kemur þu ekki þá er eg buin að koma oft og enginn heima og stundum svarað i sima. það sem er búið að halda mer frá afengi þetta lengi er hun helga sem elska ogeðslega mikið og við erum á morgunn 10 september buin að vera saman i 1 ár :) ef eg væri ekki með henni þá væri eg löngu dauður buin að fremja ......!!! en mer langar endilega að þið kommentið á þetta og þið strákar lika ef þið eruð ekki sammala Skömmustulegur

en eg var að breyta bilnum sem mamma og pabbi gafu mer undir auglisingu her eru myndir bless..





sigmar magnusson

fullllt að gerast

26. ágúst 2006 klukkan 02:53
í frettum er þetta helst að eg vann 25 millur i vigingalotto sem var á miðvikudaginn :):) en  mer vantaði töluna 13 til að vera með allar rettar !!......................... nei bara að grinast ;)

það sem er að fretta er það að það er ekkert buið að vera að gera þennan manuð i bilþrif og er eg ekkert að fila það byrjaði svo vel en juju það koma timar sem ekkert er að gera , madur getur ekki verið rikur bara einn tveir og bingó þott að einn maður varð það ;) sá maður heldur rosalega uppá money lagið en við nefnum engin nöfn ;)

fórum á stykkisholm seinasta laugardag á danska daga og var það bara gaman fekk eg að smakka hrátt hrefnukjöt hja teingdó sem var ekkert svaðalega gott ja nei takk ojjj. en fengum samt að borða gúllassúpu um kvöldið sem bragdaðist þetta lika helviti vel mmmmmm . forum á sjoinn á batnum hja teingdo og veiddum heillar 5 hörpuskeljar ;) hehe veiiii en það var samt rosa fint geggjað veður og spegilslettur sjór það var ekkert rosalega mikið af folki þarna en það var nu bara betra þvi eg var á tánnum allt kvöldið þar sem mer langaði svo mikið i afengi Óákveðinn en eg er svo heppinn að eiga svona fallega kærustu sem hjálpar mer mikið þar sem eg væri löngu fallin ef eg væri ekki astfangin Brosandi við sváfum i fellhysi sem teingdo á og það var bara fint horðum á flugeldasyninguna sem var ju bara flott
og fórum svo him i smá hysið ;) lögdum ekki af stað fyrr en um 8 næsta dag þar sem eg tok veðrið fra garðinum og var bara i pottinum hjá teingdó það voru fullt af liði þarna sem við þekktum meðal annars steini sem var fastur með þessari kerlingu allt kvöldið en engin veit hver hun var (kanski komin á sjens) og siðan voru þær iris og johanna en
eg sá bara irisi og smelti þessari fallegu mynd af henni hahaha

fyrir 2 vikum var spurt helgu hvort henni langaði i kött inn á mitt heimili og eg sagði nei en þið vitið nu hvernig þessar stelpu suða mikið ef þær fá ekki eitthvad svo eg let undan og sóttum draslið eg man nu ekki hvað þeð hjet nu en eg kallaði hann kvæsa þvi altaf degar hann sá mig kvæsti hann á mig hehe eg veit ekki afhverju kanski utaf dvi eg kvæsti á hann fyrst hehe en svo kom sá dagur að eg fekk nóg eða 3 dagurinn hehe o9g þá var eg að leggjast upp i rum og hann lá þar og þá byrjaði kvæsi að kvæsa og eg var ekkert að gera i þvi nema hvad að eg let adra löppina upp i rum og þa kvæsti hann i slow mosion hehe svo eg varð alveg brjálaður og fyrst hugsaði hvort eg átti að drepa hann en nei eg bara slo hann ur rumin og henti honum til fyrri eiganda aftur svo það verda engir kettir á minu heimili nei takk

eg er að fara á námskeið i ljósmyndun nuna á manudagin en þetta namskeið kennir manni á velina mina og photoshopið sem er floknasta helviti .. eg er svona aðeins byrjaður að læra inn á það en ekki neitt til að tala um
eg keyfti mer linsu i gær sem er 50 mm sem eg ætla mer að nota til að taka ljósmyndir af börnum :) það verdur bara gaman

en hey þetta er komið gott eg byð að heilsa :)
sigmar magnusson

stikkorð

15. ágúst 2006 klukkan 01:55
allt gott að frétta

hætti í hvalaskoðuninni á morgun

fer og næ í stundaskránna á miðvikudaginn

helen kemur heim á morgun

mamma er komin heim (og gaf okkur fullt af flottu dóti!!)

harpa kemur heim á fimmtudaginn

ég er búin að vera heima í allt sumar..nei djók;) (samt satt)

sigmar er búinn að gera að omega er útvarpsstöð í könnunninni..það er sjónvarpsstöð samt..sem ég horfi alltaf á..nei grín! hehehe

ég keypti í fyrsta skiptið fisk á heimilið í dag..reyndar bara rækjur handa kettinum..og túnfisk;)

semsagt er ég búin að eignast kött:)

og ég nenni ekki meir..þegar það líður svona langt á milli þá man maður ekki baun..er reyndar búin að þjást af gleymni í svona mánuð..
sigmar magnusson

verslunarmannahelgin

03. ágúst 2006 klukkan 22:30
ein ritgerð svona fyrir verslunarmannahelgina :)
það er buið að vera fint að gera á bónstöðinni og er að fá rosalega mikið af mössun sem er bara mjög gott þvi þar er peningurinn ;) t.d fæ eg 4fjórar  þegar eg kem aftur i vinnu 9 águst og tek það sona á kvöldin og á laugardag.eg er að vinna i þvi að mála golfið ut i vinnu þar sem það var allt buið að flagna upp öll maling af golfinu og maður verdur að hafa snyrtilegt i kringum sig ;) nuna 4 september förum eg og helga væntalega til danmerkur og verdum til 11 september og verd eg ad redda einhverjum að vinna fyrir mig a medan ætlum ut þvi við eigum eins árs afmæli og ætlum ekkert að hafa þetta ódyrt en nuna eftir sona 10 minutur kemur maður sem heitir jens og er með ibuð sem er á islandsbryggjunni sem leyjir ut i viku og ætlar hann að syna mer ibuðina a myndum heh .. og örugglega að sja mig sona fyrst heldur örugglega að eg er ad fara að djusa og á blindarfylleri hehe rosalegt . það gengur rosalega vel hja okkur helgu erum að passa þetta rosalega saman lika og erum buin að fylla ibúðina af drasli maður verdur að fara flyta i stærra bara utaf husgögnum .. ;) eg er ekkert að nenna að blogga hehe en verslunarmannahelgin gengin i gard það væri bara gaman að fara á þjoðhatið með palla og strakunum ekkert sma gaman 2001 en samt ekki 2002 einsog flest ykkar vita þá var eg uppá mitt besta þa i drykkjunni og fór á fimtudegi og byrjaði að drekka drapst einhverstaðar og endaði i koju i herjolf veit ekki alveg hvernig eg komst þangað en ju þegar eg vaknadi þa var eg bara með ekkert og var i þorlakshöfn hehe vaaa litið bilaður og mista þar af þjoðhatiðinni en það var i lagi þar sem eg hilmar og hulda vorum að spila og drekk og hin fræga setning kom upp ur huldu "spurðu mig Bleiiiikkkk" hehehe snild va eg gæti brætt úr þessu lykla borði bara með þvi að segja ykkur hvad eg gerdi þegar eg var að drekka sumir góðir timar aðrir ekki flestir ekki og er ekkert að sakna að drekka :) en hey er farinn að mála vonandi skemtið þið ykkur vel hvert sem þið eruð að afara :) arios:)
sigmar magnusson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Ef við myndum selja fyrirtækið okkar ! og stofna nýtt frá grunni hvernig eigum við að fá okkur?

Leit